Jesús Pétur!

 Er Hannes Hólmsteinn dauður og orðinn að engli? Devil

Ég nappaði eftirfarandi af blogginu hans: En úr því að ég er með ráðherrann á línunni, ef svo má segja, langar mig til að spyrja hana þriggja spurninga:

  • Hvernig finnst þér sem gömlum baráttumanni gegn Evrópusambandinu að sitja í ríkisstjórn, sem sótt hefur um aðild að Evrópusambandinu?
  • Hvernig finnst þér sem ötulum stuðningsmanni þjóðlegrar reisnar að sitja í ríkisstjórn, sem etur úr lófa Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og lætur sér lynda, að hann sé hér handrukkari fyrir Breta?
  • Hvernig finnst þér sem áköfum gagnrýnanda auðmanna að sitja í ríkisstjórn, sem vildi greiða skuldir óreiðumanna erlendis, án þess að henni bæri nein lagaskylda til þess?

Á gamalli og merkilegri bók er talað um það, hvað það stoði manninn að eignast allan heiminn, en fyrirgera sálu sinni.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Brattur

Nenni ekki að tala um Hannes en verð að segja að höfundarmyndin þín er ein sú albesta sem ég hef rekist á  var hún tekin fyrir eða eftir hádegi ?

Brattur, 22.5.2010 kl. 00:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband